Jæja hvað segiði, ég er greinilega ekki nógu dugleg að blogga hér, hef verið rukkuð um eitt stykki blogg...já Eydís mín, bara fyrir þig hehe
Ekki miklar fréttir af leigubílstjórum og svona...því miður, hehe
Úfff hef ekki alveg verið í bloggstuði undanfarið, hef lítið að segja, lífið alltaf eins hér...Vaknað, gefið prinsunum að borða, komið Gísla í leikskólann, fundið eitthvað að gera til að láta daginn líða, Gísli sóttur, fljótlega kvöldmatur og bað og strákarnir aftur að sofa...that's it
Hef samt nokkra punkta, hehe
Helgin var frábær, fékk Ásdísi frænku, Carsten og Helenu Líf litlu, í heimsókn til mín og gistu þau eina nótt...Þau búa sko nálægt Köben. Helena er bara 7 mánuðum yngri en Gísli og gátu þau leikið sér helling
Gísli var allavega ekki mjög ánægður þegar þau fóru heim og ætlaði hann bara með þeim, litli snúllinn...
Ég nýtti alla karlmennskuna í Carsten sem ég gat...já svona flesta, hehe
Ásdís var víst búin að vara hann við
Þau voru að koma með sófa til mín sem þau fengu hjá vinafólki sínu sem var að flytja heim...þessi fíni sófi, ógó þægilegur og flottur
Komu líka með þetta fína rúm í gestaherbergið, þannig að þegar þið komið í heimsókn þá fáiði gott rúm
Allavega þá er hjólið mitt komið í lag...loksins
Stýrið var eitthvað laust og gat ég aldrei fest það, sama hvað ég gerði. Þurfti greinilega karlmann í það
Hann festi fyrir mig hjólavagninn fyrir strákana á hjólið og mér tókst svo að BRJÓTA hann af í gærmorgun þegar ég var á leiðinni í leikskólann með Gísla og endaði á því að þurfa að labba með hann...trúið mér ég var mjög pissssed
Þannig að gærdagurinn fór í þetta að reyna að skipta þessu...sem mér tókst svo í dag...æji löng saga, nenni ekki að skrifa það inn núna, sorry
Hann kláraði svo að setja saman borðstofuborðið mitt sem ég var búin að kaupa sem við Nana og mamma vorum að setja saman en gátum ekki klárað því okkur vantaði borvél...en það er komið núna
Nú fer þetta að koma hjá mér og verða ansi heimilislegt hérna, þyrfti bara að mála aðeins...reyndar dáldið mikið og þá er þetta flott
Hringdi í dag út af þessum atvinnuleysisbótum sem ég sótti um því ég var ekkert farin að heyra og þá var mér sagt að það vantaði skattkort...enginn sagði mér að ég þyrfti það. Þó það sé sjálfsagður hlutur að þess þurfi, áttaði ég mig ekki á því og þeir voru ekkert að hringja og láta mig vita af því...bölvaðir
Ég hringdi í dag eftir því og fæ það sent í pósti á morgun og fer þá með það í kommununa. Þá ætti það að vera komið
Vona bara að ég fái mannsæmandi upphæð til að lifa af hérna
Fór í kommununa í gær til að athuga með dagmömmu fyrir Victor og ekkert bólar á því
En það þýðir bara það að ég kemst ekki í dönskunámið fyrr en ég fæ pláss fyrir hann því það er á morgnana, 1 -2 í viku, kl 8-14 og svo á kvöldin frá 18-21 og það virkar engan vegin fyrir mig að fara á kvöldmatar- og háttatíma hjá prinsunum
Konan sem ég talaði við var mjög indæl og ég lét setja hann á biðlista líka inni í Herning þó það taki mig dáldið lengri tíma að fara með hann...maður reynir allt núna
Þið hafið allavega smá fréttir af okkur héðan... lofa að vera duglegri að blogga...hef verið eitthvað svo seinheppin þessa dagana að ég hef engu nennt. Það er svo ótrúlegt að allt sem ég ætla að gera það er alltaf eitthvað vesen, alltaf eitthvað sem virkar ekki...alltaf eitthvað
Lofa að vera í betra bloggstuði næstu daga
Bara 9 dagar í Þórey og 10 dagar í Davíð
Miss you all and love you all
Knúsogkram yfir hafið
Guðrún seinheppna